Gautaborg 2007

Heja Sverige!

þriðjudagur, 24. júlí 2007

Hæhæ, bara láta vita að ég er búin að setja inn fleiri myndir á myndasíðuna, t.d. mynd ad fallega gula húsinu mínu sem verður reyndar bara husið mitt í tæpar tvær vikur í viðbót. Þá hætti ég að vinna, nánar tiltekið er 4.ágúst síðasti vinnudagurinn minn en ég kem reyndar ekki heim fyrr en sunnudaginn 12.ágúst. Í millitíðinni ætlum við að fara í smá roadtrip, ég og tvær aðrar íslenskar stelpur, til Stokkhólms og Helsinkis og kannski víðar. Þetta plan fór reyndar næstum því út í veður og vind þegar ég fékk launaseðilinn minn fyrir júní og áttaði mig á því hversu hræðileg launin hérna úti eru í rauninni. En ég ákvað samt að láta þetta ekki stoppa mig og er því að reyna að spara og spara þessa dagana til þess að þurfa ekki að sofa á götunni með finnsku rónunum. Ef ég á einhvern falinn, moldríkan frænda þarna úti sem er að lesa þetta hins vegar þá máttu alveg leggja inn á mig pening, reikningsnúmerið mitt er... nei ókei, ég er ekki orðin alveg svona desperate ennþá.

Annars er allt mjög gott að frétta héðan, við tökum lífinu bara frekar rólega og núna fara stelpurnar að byrja að tínast heim. Ég hélt að ég væri að vinna stutt þar sem ég fer heim um miðjan ágúst en í rauninni er ég að vinna frekar lengi miðað við hina hérna úti. Flestar stelpurnar eru líka að fara eitthvað annað út áður en skólinn byrjar á meðan ég er búin að fara í mína utanlandaferð í ár. Það er samt frekar fyndið þegar við sitjum og tölum um hvað okkur langar mikið til útlanda þegar við erum í rauninni nú þegar í útlöndum. Gautaborg er bara orðin eins og heimili fyrir manni og ég veit að ég á eftir að sakna borgarinnar ótrúlega mikið eftir að ég kem heim. Aftur á móti er ég samt líka byrjuð að fá pínuponsulitla heimþrá núna þó að hún sé ekki orðin neitt mjög mikil en það verður gott að koma heim og þurfa ekki að hugsa um hvað maður eigi að borða um kvöldið, hvort það sé til klósettpappír heima eða hvort það megi þvo grátt og hvítt saman. Ég er alveg til í að geyma það í smá tíma í viðbót þótt það sé nú ekki langt í að mamma sparki mér út á götu, það er bara tæpt ár í að ég klári MH!

En í kvöld er sjónvarpskvöld svo ég ætla að drífa mig að horfa á Hell's Kitchen og borða kebab. Mmmm, ljúfa lífið!

miðvikudagur, 11. júlí 2007

Jaeja, tha er kominn timi til thess ad eg skrifi eitthvad herna aftur eftir sma hle. Var i Englandi um helgina i brudkaupi hja staerstu og staekkandi (adallega a thverveginn!) systur minni sem kyldi loksins a thad. Thad var frabaert og gaman ad komast adeins burt fra vinnunni. Mer fannst thetta reyndar nokkud langt ferdalag fyrir svona stuttan tima en thad var ad sjalfsogdu allt thess virdi. Auk thess eignadist eg fullt af auka systkinum thessa helgi og aetleiddi öll half- og stjupsystkini hennar Unu sem min eigin, fjolskyldan fer sistaekkandi. Er komin med heimbod baedi til Stokkholms og Malmö sem getur vel verid ad eg nyti mer tvi thad gaeti nu verid gaman ad skoda eitthvad annad en bara sina eigin borg.

Sidan komu mamma og Hildur med mer til baka til Gautaborgar a sunnudaginn og thaer verda thangad til a morgunn (fimmtudag). Tok Hildi med mer i Liseberg i gaer og vid vorum mjog hugadur og forum i kolkrabbann tvisvar (skemmtum okkur LANGbest af öllum i taekinu!) og rolurnar (bara med fimm ara bornum) einu sinni og vorum skithraeddar! Tokum sidan myndir af okkur med handaförunum hennar Carolu og gerdum fullt af ödrum turistahlutum, rosalega gaman hja okkur! Annars er vinnan buin ad vera frekar mikid skitajobb thessa sidustu daga, allt fullt af barnafjolskyldum (börn = leidinlegt, tid aettud ad vera buin ad na tvi nuna eftir listann minn um daginn) og sidan thurfti eg ad vera a 'reykhaedinni' svokölludu thar sem folk notar heldur betur taekifaerid fyrst thad ma reykja og askar i rumid, klosettid, mottuna og bara alls stadar sem tvi dettur i hug. Reykingamenn aettu ad skammast sin, allaveganna thessir, djöfull er thetta ogedslegt! En eg tek thessu samt öllu med stoiskri ro tvi thad gengur audvitad ekkert annad, madur tharf ad vera med jakvaett hugarfar gagnvar thessu öllu, thad segir mamma allaveganna alltaf vid mig og audvitad hefur hun rett fyrir ser eins og venjulega!

Annars er tha dlika nytt i frettum ad eg er flutt fra Amiralitetsgatan 24N og flutt yfir a Krokslätts Parksgata 18A. Thad var buid ad vera algjort vesen a folkinu sem eg bjo hja adur, eina nottina kom 16 ara sonurinn heim klukkan trju og gubbadi ut allt badherbergid og endadi svo a tvi ad deyja a golfinu fyrir framan herbergid mitt og liggja thar hrjotandi restina af nottinni. Einn morguninn var konan (mamma hans semsagt!) lika svo thunn ad hun la aelandi inni a badherberginu svo vid komumst ekki i sturtu. En nuna er eg semsagt komin ut ur thessu rugli og komin i otrulega cozy ibud i hverfi sem heitir Krokslätt. Frekar dodgy hverfi thar sem stoppustödin er, ekkert mjög gaman ad kvöldin en hverfid sjalft er mjög fallegt saenskt fjölskylduhverfi. Aetla ad reyna ad taka myndir ad husinu og hverfinu til ad setja inn a myndasiduna og sina öllum sem ekki hafa komid til ad heimsaekja mig (semsagt öllum fyrir utan mömmu og Hildi). Thessa dagana er eg annars ad reyna ad taela vini mina, adallega Sunnu og Melkorku samt, i thad ad koma og heimsaekja mig um midjan agust adur en eg kem heim. Tha er rosalega flott tonlistarhatid herna i Gautaborg i Slottsskogen, fullt af artistum eins og Mika, Lily Allen, The Hives, Kanye West, Primal Scream, Manu Chao, Peter Björn and John, CocoRosie, Regina Spektor, The Ark og nyja uppahaldid mitt hann Timo Räisänen. Herna er heimasidan fyrir ahugasama http://wayoutwest.se/.

Svo vil eg helst ad einhver truadur byrji ad bidja fyrir tvi ad vedrid fari ad skana herna uti tvi thad heldur bara afram ad dembast yfir okkur rigningin, thetta er ordin ein stor blaut borg! Solin nadi adeins ad syna sig i gaer en thad var mjog stutt og eg sa hana mest bara ut um gluggann a hotelinu a medan eg threif eftir öll litlu, skitugu börnin! En nuna aetla eg ad reyna ad na sporvaginum minum heim!

mánudagur, 2. júlí 2007

Myndir

Ekki langt blogg núna (er í íslenskri tölvu núna, mjög þægilegt!). Ætlaði bara að segja að ég er búin að setja inn nokkrar myndir á myndasíðuna hérna til hægri, ekkert mjög margar en það er allaveganna eitthvað.

Annars er ekki mikið að frétta, það var bara vinna alla helgina svo það gerðist ekki margt. Kíktum aðeins í Liseberg en ekki mjög lengi, bara svona athuga hvort VIP-passarnir okkar frá Gothia Towers virkuðu sem þeir gerðu. Er í fríi í dag en vinn svo á morgunn og miðvikudaginn, síðan er það bara England á fimmtudaginn og fram á sunnudag svo það er allt að gerast.

Það ætlar þó ekki að koma gott veður aftur og ég kenni sjálfri mér um, ég hefði ekki átt að monta mig svona mikið af góða veðrinu fyrstu dagana því að síðan þá hefur veðrið bara verið skítt. Vonum samt það besta!