Hæhæ, bara láta vita að ég er búin að setja inn fleiri myndir á myndasíðuna, t.d. mynd ad fallega gula húsinu mínu sem verður reyndar bara husið mitt í tæpar tvær vikur í viðbót. Þá hætti ég að vinna, nánar tiltekið er 4.ágúst síðasti vinnudagurinn minn en ég kem reyndar ekki heim fyrr en sunnudaginn 12.ágúst. Í millitíðinni ætlum við að fara í smá roadtrip, ég og tvær aðrar íslenskar stelpur, til Stokkhólms og Helsinkis og kannski víðar. Þetta plan fór reyndar næstum því út í veður og vind þegar ég fékk launaseðilinn minn fyrir júní og áttaði mig á því hversu hræðileg launin hérna úti eru í rauninni. En ég ákvað samt að láta þetta ekki stoppa mig og er því að reyna að spara og spara þessa dagana til þess að þurfa ekki að sofa á götunni með finnsku rónunum. Ef ég á einhvern falinn, moldríkan frænda þarna úti sem er að lesa þetta hins vegar þá máttu alveg leggja inn á mig pening, reikningsnúmerið mitt er... nei ókei, ég er ekki orðin alveg svona desperate ennþá.
Annars er allt mjög gott að frétta héðan, við tökum lífinu bara frekar rólega og núna fara stelpurnar að byrja að tínast heim. Ég hélt að ég væri að vinna stutt þar sem ég fer heim um miðjan ágúst en í rauninni er ég að vinna frekar lengi miðað við hina hérna úti. Flestar stelpurnar eru líka að fara eitthvað annað út áður en skólinn byrjar á meðan ég er búin að fara í mína utanlandaferð í ár. Það er samt frekar fyndið þegar við sitjum og tölum um hvað okkur langar mikið til útlanda þegar við erum í rauninni nú þegar í útlöndum. Gautaborg er bara orðin eins og heimili fyrir manni og ég veit að ég á eftir að sakna borgarinnar ótrúlega mikið eftir að ég kem heim. Aftur á móti er ég samt líka byrjuð að fá pínuponsulitla heimþrá núna þó að hún sé ekki orðin neitt mjög mikil en það verður gott að koma heim og þurfa ekki að hugsa um hvað maður eigi að borða um kvöldið, hvort það sé til klósettpappír heima eða hvort það megi þvo grátt og hvítt saman. Ég er alveg til í að geyma það í smá tíma í viðbót þótt það sé nú ekki langt í að mamma sparki mér út á götu, það er bara tæpt ár í að ég klári MH!
En í kvöld er sjónvarpskvöld svo ég ætla að drífa mig að horfa á Hell's Kitchen og borða kebab. Mmmm, ljúfa lífið!
4 Ummæli:
hlakka til að fá þennan fræga kebab þegar þú kemur heim!
Thad greinilega borgar sig ad kvarta - blogg komid um leid!!! Gaman ad skoda myndirnar. Hlakka til ad sja thig og restina af myndunum thegar thu kemur heim.
Bid ad heilsa folkinu minu i Stokkholmi ef thu hittir thad.
hæhæ nice myndir ;) Vildi að ég gæti komið að heimsækja þig, það yrði of gaman! :D
En er að farað borða og svo á hestbak :) heyri í þér :*
Hae hae, sit og laet mer leidast a Heathrow a leidinni heim til Islands, og var ad vona ad thu vaerir nu kannski buin ad blogga sma....no such luck!
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim