Þetta er allt að koma!
Jæja, þá er ég búin að koma upp þessu fallega bleika bloggi þar sem ég ætla að reyna að blogga sem oftast á meðan ég er í Svíþjóð. Ef einhver heldur að ég ætli að blogga hérna mér til skemmtunar er það mikill misskilningur, þetta blogg þjónar aðeins þeim tilgangi að koma í veg fyrir það að mamma mín hringi í mig oft á dag til þess að spyrja hvort allt sé ekki í lagi. Í staðinn er ég búin að lofa henni að blogga eins oft og ég get sem ég ætla að reyna að standa við.
Annars byrjar ferðin vel strax (þótt ég fari ekki út fyrr en eftir tvo daga). Fékk símtal í gær frá Icelandair þar sem þeir sögðu mér að því miður hefði fluginu mínu verið aflýst (hérna stoppaði ég og hugsaði í sekúndubrot, ómægad ég kemst ekkert til Svíþjóðar og þarf að vinna aftur í IKEA í sumar) og þyrfti þess vegna að fljúga til Stokkhólms í staðinn og síðan frá Stokkhólmi til Gautaborgar. Frábærar fréttir fyrir flughrædda. Ég tók þessu nú samt öllu með ró en er orðin frekar stressuð núna þar sem ég hef ekki ennþá fengið miðann minn sem þau lofuðust til að senda mér.
Fyrir utan allt þetta er ég byrjuð að hugsa um hvað ég eigi nú að taka með mér, það erfiðasta er að velja hvaða skó ég vil taka með... jájá, ok, ég er kona, ég veit það, en þetta er mjög erfitt val. Hvað ef ég kaupi mér eitthvað úti sem passar einmitt við skó sem ég tók svo ekki með mér út? Það væri algjör disaster! Annars held ég að ég sé komin með allt það sem ég þarf til þess að lifa af í Svíþjóð:
Fake tan
Ljóst skol
Bleik föt
Best of Abba diskur
Basshunter plakat
Vindvél (a la Carola)
Munntóbak
Ég meina, maður verður nú allaveganna að reyna að falla inn í hópinn!
17 Ummæli:
Sko ef thessi stada kemur upp, tha bara kaupir madur ser nyja sko lika!! Malid leyst!!
Hlakka til ad lesa meira
Una staersta og sistaekkandi (amk a thverveginn) storasystir
Sko ég fór mjög spennt inn á ákveðnar heimasíður og mér finnst þær nú ekki passa við lýsingarnar....er freka ósátt hérna!
Geri mér grein fyrir því að við viljum nú stundum ýkja hlutina til að gera þá skemmtilegri en hún kemur mér fyrir sjónir sem einhver með alveg splittaðan persónuleika þegar kemur að enska og íslenska textanum sínum. Kannski er hún bara splittuð? Hvað segir geðlæknirinn við því? :)
Hahahaha!!!! Ég get svo sagt þér hvernig á að líta út eins og söngkona í ABBA ef þú vilt :P
Já takk Sunna, þú og Agnetha gætuð kennt mér ýmislegt!
Og já Hildur, ég er hrædd um að við ýkjum kannski svolítið mikið stundum, þetta var víst ekki alveg svona svæsið.
Hmmmm, eg skil ekki einu sinni kommentid fra Hildi....
Ég er búin að senda þér útskýringu í e-maili Una mín ;)
sko, síðan er líka bara hægt að sleppa því að kaupa flík, þá er engin hætta á að hún passi ekki við skóna sem voru skildir eftir heim. Annars skil ég ekki að þú eigir svona mörg skópör, þú ert alltaf í sömu skónum finnst mér! eða er það kannski sami skórinn í mörgum litum! já og ég er líka búin að kynna mér jú nó hú og ég er bara mjög immpresst á lúkkinu!
Og svo hlakka ég mikið til að lesa sögur af því sem fer fram á hótelherbergjum í sverje!
måske, måske !!!
Katla
Hmmm ja.....kemur ekki allt fraega saenska folkid ad gista hja ther - Carola og Liggy Lu Liggy Lei gaurarnir, og Emil i kattholti.....thu verdur ad segja okkur allt um thad. Kom Lina langsokkur ut ur herbergi Emils thegar Carola setti af stad reykskynjarann med hassreykingum? Mjog spennandi allt saman.
omg, er estrogenið alveg að fara með með Unu? Eða er það brúðkaupsundirbúningsstress???
ójá, ég gleymdi........
Fínt á þér hárið Diljá :)
ks
Takk kærlega, enda kostaði það sitt, það er ekki beint ódýrt að fara í klippingu og litun þessa dagana.
Ætli það sé ekki bara bæði og hjá Unu, en ég lofa ykkur samt öllum að láta vita ef Carola kemur á Hótel Gothia Towers. Það yrði stórfrétt ársins í þessari fjölskyldu.
Er Diljá að fara að sofa hjá Emil í Kattholti? Það held ég þýði marga daga í smiðjuskúrnum! Og svo langar okkur ekkert í sænska tengdasyni úr smálöndunum, gerum máske undantekningu ef hann er från Skåne, og segir "Kíjéúkae Kíjéúlae". Engin norður-sænsk pastelpólóbola basshönterfrík tack så mycket!
Bara að tékka hvort mér tekst að koma inn kommenti. Reyndi í gær, en gekk ekki.
Nú er litla stelpan hennar mömmu sinnar farin ein út í hinn stóra heim. Vill til að hún er vel upp alin frá góðu heimili, skynsöm og yfirveguð og engin ástæða til að hafa áhyggjur.Við vorum samt báðar hálf klökkar, þegar við kvöddumst á flugvellinum.
Nú er bara að vera dugleg að blogga fyrir mömmu og alla hina létt geggjuðu fjölskyldumeðlimina ( sjá komment hér á undan).
Lett geggjud fjolskylda? Speak for yourself, eins og vid segjum her i UK! Dagur 2 i Gautaborg, og ekkert blogg komid enn......eg bid mjog spennt....
Já hvernig er það, á ekkert að blogga? Hvernig er hótelið? Er almennt mikill skítur sem þú þarft að þrífa úr klósettinu? Hvernig er hann í samanburði við íslenskar hægðir? Er miss puritygirl86 byrjuð að koma boðskapnum sínum áleiðis? Fréttir takk fyrir annars fer ég að búa þær til.
Búa til fréttir? Ég pant vera memm! Fréttastofa Lord Greystoke og Kapteins Ofurbrókar...frjáls og óháður fjölmiðill...
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim