Gautaborg 2007

Heja Sverige!

mánudagur, 2. júlí 2007

Myndir

Ekki langt blogg núna (er í íslenskri tölvu núna, mjög þægilegt!). Ætlaði bara að segja að ég er búin að setja inn nokkrar myndir á myndasíðuna hérna til hægri, ekkert mjög margar en það er allaveganna eitthvað.

Annars er ekki mikið að frétta, það var bara vinna alla helgina svo það gerðist ekki margt. Kíktum aðeins í Liseberg en ekki mjög lengi, bara svona athuga hvort VIP-passarnir okkar frá Gothia Towers virkuðu sem þeir gerðu. Er í fríi í dag en vinn svo á morgunn og miðvikudaginn, síðan er það bara England á fimmtudaginn og fram á sunnudag svo það er allt að gerast.

Það ætlar þó ekki að koma gott veður aftur og ég kenni sjálfri mér um, ég hefði ekki átt að monta mig svona mikið af góða veðrinu fyrstu dagana því að síðan þá hefur veðrið bara verið skítt. Vonum samt það besta!

5 Ummæli:

Þann 3. júlí 2007 kl. 00:06 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Gaman að fá loksins að sjá myndir af vinkonum þínum. Ljómandi mömmuvænar að sjá.Mig sveið í húðina að sjá myndina af Slottskogsbrunanum mikla. Passa sig betur næst ! Nú eru bara 2 dagar þangað til við hittumst í stórborginni Barnard Castle. Hlakka mikið til að sjá þig, elskan.Tölum saman á morgun.

 
Þann 3. júlí 2007 kl. 11:24 , Anonymous Nafnlaus sagði...

ég heimta gott veður! Dove light taning dugar bara upp að ákveðnu marki!!! :) En ef ég fæ tækifæri til að kaupa eitthvað skemmtilegt og fá mér nokkra bjóra þá kannski fyrirgef ég það.

 
Þann 4. júlí 2007 kl. 18:26 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæhæ, er í Englandi núna og það er búin að vera rigning allan tímann >:-( Gott að það á að lagast um helgina þegar ég verð farin heim! Allavega, skemmtu þér vel í Englandi sæta :)

 
Þann 7. júlí 2007 kl. 22:17 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Ég sakna þín Diljá! :(

 
Þann 11. júlí 2007 kl. 18:17 , Anonymous Nafnlaus sagði...

Hæhæ :D leiðilegt að heyra með rigningun :s búin að vera mikil sól hérna í sveitasælunni hjá mér :p Maður þarf svo að fara bráðum að hrigja í þig og heyra í þér hljóðið :) ætla að fara að skoða myndirnar, hlakka mjög til ;) Vona að það sé gaman hjá þér í Englandi! Kossar og knús, kv. Melkorka

 

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim