Gautaborg 2007

Heja Sverige!

þriðjudagur, 26. júní 2007

Hej!

Tha getur mamma andad rolegar, midsommer helgin er buin og eg passadi mig mjog vel a afenginu og strakunum. Eda, allavegann svo vel ad eg komst heil heim! Ferdin var rosa skemmtileg, vid forum samferda öll sem vinnum a Hotel Gothia med rutu til eyju sem heitir Bohus-Malmön og var einn saenskasti stadur sem eg hef sed. Ef einhver man eftir thattunum um Skerjagardslaekninn tha var thetta svona svipad og thad. Vedrid var reyndar ekkert mjög gott, thetta er vist hja Sviunum eins og hja okkur um Verslunarmannahelgina, thad er vist bara alltaf rigning a midsommer og thad var enginn breyting a tvi nuna.

Thegar vid komum i husid, ordin frekar blaut og hrakin var tekid mjög vel a moti okkar, tho ad mer lidi reyndar eins og eg vaeri komin inn i myndina Revenge of the nerds thegar eg kom tharna inn. Thetta voru semsagt allt skiptinemar fra hinum ymsu taeknihaskolum heimsins sem thyddi ad kynjahlutfallid var um thad bil 8 strakar fyrir hverja stelpu sem hefdi verid rosalega gaman ef their hefdu verid svona geeky cute... tvi midur voru their bara geeky. Finnur hefdi samt skemmt ser mjög vel tharna thar sem eg held ad their hafi naestum allir verid ad laera tolvu/velmenna/rafmagns/hugbunadar/eitthvad alika - verkfraedi og voru mjog aestir i ad fa ad spjalla um thad allt vid okkur. Spennandi!

Einhver kom sidan med tha godu (eda thad fannst okkur tha) hugmynd ad fara ad synda. Okkur leist sko ekkert sma vel a tad og byrjudum ad taka til bikini og handklaedi og lögdum hress af stad a eftir hinu folkinu. Hugsudum med okkur a leidinni hvad vid hefdum nu aldrei truad tvi ad thad vaeri sundlaug a svona litilli eyju og hvad thad vaeri fint ad getad synt adeins. Okkur til mjög litillar anaegju komumst vid fljott ad tvi ad thad var engin sundlaug a thessari eyju heldur höfdu thessir snarvitlausu Sviar verid ad meina sjoinn. Ugh! En fyrst vid vorum komin og öll geekin voru ordin svo spennt ad sja stelpur a sundfötum i fyrsta skiptid i langan tima akvadum vid ad skella okkur bara. Mikil mistök. Thetta var stysti 'sundsprettur' sem eg hef nokkurn timann tekid, eg tok ekki timann en eg giska a ad hann hafi enst i um thad bil 20-30 sekúndur. Helvitis Sviar ad plata okkur ut i thetta!

Annars var restin ad ferdinni mjög skemmtileg, thad voru teknir nokkrir midsommer dansar, saenskur kvoldverdur og spilud fullt af lögum med Basshunter, ekki slaemt! Svo var thad bara vinnan a sunnudeginum og thad var ekkert sma horrible dagur. Allar fjölskyldurnar voru ad fara af hotelinu og herbergin voru eins og svinastia eftir alla skitugu litlu saensku krakkana, urgh, vid vorum ordnar raudar i framan af pirringi thegar vid loksins vorum bunar. Eina sem lifgadi upp a skapid var vonin um ad sja Justin Timberlake sem var ad koma hotelid thennan sama dag. Saum hann reyndar ekki en thad hjalpadi samt til ad bida og vona. Sem betur fer var tho manudagurinn frekar audveldur og eg var buin med herbergin min rett eftir hadegismat. Her er hins vegar listi sem eg er buin ad setja saman yfir uppahalds hotelgestina mina:

Buisnessmenn - gista oftast ekki lengi og eru hvort ed er aldrei inni a hotelherberginu svo thad er mjog hreint
Flugmenn - nota oftast bara eitt handklaedi, henda engu i ruslid og bua um rumid eftir sig
Flugfreyjur - sama og flugmennirnir, stoppa stutt og eru mjog snyrtilegar
Bandarikjamenn - einu sem skilja eftir tips og eru mjog vinsaelir fyrir thad

Og ovinsaelustu gestirnir:

Barnafjoskyldur - hvernig er haegt ad skita svona mikid ut a einni nottu? Ekki langar mig til thess ad sja heimilid ykkar, sodalega folk!
Astfangin pör - segi ekki mikid en thad er allaveganna ekki mjog gaman ad skipta um a rumunum herna... eda thrifa inni a badherberginu. Get a room... eda, thid vitid....
Einmana folk - thad er ekkert eftir i minibarnum, buid ad skilja eftir fullt af glanstimaritum og ruslid er ad flaeda yfir af nammi-umbudum og Ben & Jerry's dollum. Verid bara heima hja ykkur!

En i dag er eg ad njota thess ad eiga fri og thurfa ekki ad dila vid neitt ad thessu folki, jibbi! Eg vona samt ad vedrid fari ad skana bradum, hef ekki tholinmaedi i thessa rigningu mikid lengur.

fimmtudagur, 21. júní 2007

Jaeja, oskin ykkar raettist, thad litur ut fyrir ad eg se ekki ad fara a JT eftir allt saman. Vid vorum reyndar adeins of fljot a okkur og vorum buin ad bidja um fri fyrir thridjudaginn (Justin er a manudaginn) og bjodast til ad vinna a sunnudeginum i stadinn. Sidan voru engir midar eftir nema VIP midar sem kostudu 35000 kronur. Tja.... held ekki. I stadinn aetlum vid bara ad halda Justin party a manudaginn og taka vinnuna med trompi a sunnudaginn.

Annars er ekki mikid buid ad gerast, 17.juni var a sunnudaginnn og vid aetludum a einhverja islendingagledi i Slottskogen en komumst svo ad tvi ad thetta vaeri eiginlega bara ekkert fyrir okkur svo vid forum bara a Subway i stadinn og heldum upp a thodhatidardag Islendinga a pool-stofu seinna um kvoldid. Mer fannst thetta kannski ekki alveg nogu thjodlegt en vid reyndum tho okkar besta.

I vinnunni a manudaginn fekk eg pleasant surprise ad eg vaeri ekki ad vinna a thridjudeginum sem var serstaklega anaegjulegt thar sem thad var einu dagurinn i vikunni sem atti ad vera gott vedur. Eg akvad ad nyta mer thad og for i nokkurra klukkutima solbad (var reyndar adeins of langt) og endadi a tvi ad lita ut eins og tomatur, frekar sexy. Fekk sidan skammir fra mommu um kvoldid fyrir ad bera ekki a mig nogu mikla solaroliu. Hmmm, var einmitt ad fatta nuna ad thad er vist ö a thessu lyklabordi svo eg tharf ekki ad skrifa alltaf o. Nuna aetla eg ad nota mer thetta.
Örvar
Örvar
Örvar
Örvar
Örvar

Uff, hvilikur lettir! Annars hefur thad bara verid vinnan en a morgunn erum vid i frii og tha förum (ö-id er ad gera sig!) vid i nokkurra tima rutuferdalag einhversstadar i Svidtjod og endum a einhverri eyju. Thad hlytur reyndar ad thida ad thad verdi lika batsferd sem mer list ekkert alltof vel a en hvad gerir madur ekki. Thad er nefninlega thodhatid herna i Svithjod nuna um helgina thar sem thad er Midsommar (sem eg held ad heiti Jonsmessunott a islensku) og allir Sviarnir eru ad fara ut ur baenum og i litlu saensku husin sin uti a landi ad drekka saft og borda kanel bullar. Thar af leidandi voru naestum allir gestir Gothia Towers ad tjekka sig ut i dag sem jok enn meira a gledina, ut med gestina!!!


Jaeja, tha aetla eg ad fara i H&M, thad er ordinn mikill naerbuxnaskortur herna a Amiralitetsgatan 24N tvi ad eg er ekki enntha buin ad nenna ad thvo af mer. Ef eg kaupi mer svona 10 stykkja pakka aetti eg ad getad frestad tvi i allaveganna viku i vidbot, jibbi! Upps, er mamma nokkud ad lesa thetta?

Hej då!

sunnudagur, 17. júní 2007

Hae hae, aetladi bara ad setja inn saenska simanumerid mitt ef einhver myndi vilja heyra i mer thar sem thad er buid ad loka hinu yfir sumarid.

00 46 0736306476

Annars er litid ad fretta hedan, fyrsta vinnuvikan min var bara mjog fin og var meira ad segja i frii alla helgina sem var frabaert. Gerdum samt ekki mjog mikid, erum ad spara okkur fyrir naestu helgi thegar thad er Midsommer og vid forum til Malmö. Erum sidan ad spa i ad fara a Justin Timberlake tonleika 25.juni ef vid faum mida sem verdur gedveikt!

Jaeja, vid erum ad fara ad fagna 17.juni, skrifa meira seinna.

fimmtudagur, 14. júní 2007

Jaeja, tha kemst eg loksins eitthvad i tolvur, alltaf buid ad loka bokasafninu thegar eg er buin i vinnunni en nuna er eg buin ad komast ad tvi ad thad er haegt ad komast a netid i Seven-Eleven thannig ad thar sit eg nuna.

Vedrid er tvi midur ekki alveg jafn gott lengur en thad er samt sol nuna tho thad se adeins buid ad kolna og meira rok. Fyrsti dagurinn i vinnunni var a manudaginn og midad vid horror-sogurnar sem hinar stelpurnar voru bunar ad segja mer fra thessari vinnu bjost eg ekki vid miklu. Thetta kom samt skemmtilega a ovart, mer fannst thetta bara fint og agaett ad thurfa ekki ad eiga vid neina fula gesti, their eru oftast farnir ut thegar vid komum. Annars verdur mamma ekki anaegd thegar eg kem heim tvi ad herna uti er eg buin ad laera allt um yfirbordthrif og hvernig a ad lata lita ut eins og allt se rosalega hreint tho ad thad se thad ekki. Gott ad kunna thegar tharf ad thrifa ibudina heima, ekki satt mamma? Vid vorum i starfsthjalfun i 3 daga og i dag var fyrsti dagurinn thar sem eg fekk ad vinna ein. Tha faer madur bara lista med herbergjum (fekk 15 herbergi i dag, max er 18) og sidan fer thad bara eftir tvi hversu fljotur madur er hvenaer madur fer heim. Vinnutiminn er 9-18 en ef madur er duglegur getur madur verid buinn og kominn ut i solina klukkan fimm eda jafnvel half-fimm. Eg kann vel ad meta thetta kerfi, tha situr madur ekki bara og horfir a klukkuna allan daginn heldur hefur alltaf eitthvad ad gera og getur sidan bara farid heim thegar allt er buid. Er ekki buin ad finna neitt mjog ahugavert i herbergjunum, bara nokkra smokka, tomar koniakfloskur og svo var ein sem var buin ad tyna allt ut ur minibarnum og fylla hann af engu nema Dumle-karamellum. Og thetta er ekkert thad litill minibar ef einhver helt thad.

Annars finnst mer Gautaborg algjort aedi! Borgin er rosalega cozy og allt er i gongufjarlaegd og sporvagnakerfid rosalega einfalt og thaegilegt. Fyrir utan thad ad bara thad ad labba nidur goturnar herna eda fara i straeto i vinnuna er veisla fyrir augun. Eg er ekki ad grinast thegar eg segi ad eg geti talid a fingrum annarar handar alla ljotu strakana sem eg er buin ad sja sidan eg kom hingad. Thad er otrulegt, thessi godu gen eru alveg ad fara med Sviana! Annars thydir thad reyndar lika ad stelpurnar eru algjorlega gorgeous lika svo madur tharf ad reyna meira a sig til thess ad standast samanburdinn, ekki thad ad eg thurfi ad reyna mikid, madur er audvitad svo saetur! A sunnudaginn sidasta forum vid stelpurnar (islenska mafian er thad sem vid erum vist kalladar) nidur ad einhverju vatni og grilludum pulsur (gekk svona upp og ofan) og soludum okkar i kvoldsolinni. Erum sidan buin ad hittast nokkrir islendingarnir a kvoldin og elda saman og svoleidi sem er mjog cozy. A morgunn er sidan stefnan tekin a Liseberg ef thad verdur gott vedur en annars er thad bara bio. Thad er samt frekar flott ad thegar madur er kominn a efstu haedirnar a hotelinu minu eins og eg var ad thrifa i dag ser madur beint yfir Liseberg, russibanana, fallturninn og allt. Eg er ordin mjoooooog spennt fyrir tvi enda fa allir starfsmenn Hotel Gothia Towers fritt inn i gardinn og mega taka tvo gesti med ser (hint hint, Hildur og mamma). Reyndar tharf ad borga inn i taekin en thetta sparar manni samt fullt af pening.

Jaeja, tha aetla eg ad fara ad haetta thessu, held ad eg se buin ad skrifa nog i bili tvi eg veit ekki alveg hvenaer eg fer naest i tolvuna. Vonandi hafid thid thad oll gott heima, eg sakna ykkar (adeins allaveganna)!

laugardagur, 9. júní 2007

Jaeja tha, eg vildi ekki sja hvada frettir johannes og orvar myndu bua til svo eg akvad ad eg neyddist til thess ad blogga sjalf. Sit nuna a Stadtsbiblioteket a Avenyn thar sem mer tokst ad gera mig skiljanlega a saensku (engin enska nema i neydartilfellum) vid konuna i afgreidslunni og tad gekk allaveganna svo vel ad eg sit vid tolvuna nuna.

Eins og mamma sagdi kvoddumst vid half-klokkar a flugvellinum i Keflavik en flugid gekk bara mjog vel. Thegar eg kom ut ur flugvelinni i Stokkholmi komst eg tho ad tvi ad tad sem eg hafdi haldid ad vaeru nogu god sumarfot fyrir Svitjod (gallabuxur, converse skor og stuttermabolur) var bara alls ekki nogu gott. Gat tho ekki hugsad mikid um thad tvi eg thurfti ad hlaupa yfir endilangan flugvollinn og rett komst i flugid til Gautaborgar. I flugvelinni thangad var hitastigid um thad bil 40 gradur og fotin farin ad limast iskyggilega mikid vid mig. Thannig ad thad fyrsta sem var gert i Gautaborg var ad skipta um fot, uff, hvilikur lettir. Thad reyndist lett ad finna bussinn nidur i bae og a leidinni akvad eg ad eg vaeri nu ekki komin til svitjodar fyrir ekki neitt og a medan saenska landslagid for framhja dro eg upp ipodinn og hlustadi a (i thessari rod) Basshunter, Carolu, The Ark og loks Peter Bjorn and John. Hefdi thurft ad vera ad borda saenskar kjotbollur samtimis en thad var vist ekki leyfilegt ad vera med mat i rutunni.

Eftir thetta tok vid sma pud thar sem eg thurfti ad drosla toskuna minum fyrst a Nordjobb skrifstofuna og sidan a nyja heimilid mitt (sja myndir ef mer tekst ad setja thaer inn). Nuna by eg semsagt a Amiralitetsgatan 24N i Majorna hverfinu i Gautaborg. Thetta er mjog kosi hverfi og greinilega mikid af fjolskyldum sem bya tharna. Ekki mikid af kaffihusum einmitt tharna en hins vegar eru pizza-stadir a hverju einasta horni thar sem er haegt ad fa 12 tommu pizzur fyrir u.th.b. 500 kr islenskar. Ekki finnst mer thad mikid midad vid pizza-stadina herna heima. Ibudin er miklu staerri en eg helt, thad eru thrju svefnherbergi, stort eldhus/bordstofa, stor stofa og tvo badherbergi. Hins vegar mun fjolskyldan liklegast bua tharna stundum med okkur og thad gaeti ordid nokkud throngt. Fjolskyldan samanstendur semsagt af konunni sem er ad leigja okkur, sem er mjog fin, syni hennar sem er 16 ara og frekar mikid a gelgjunni sem er mjog fyndid og dottur hennar sem er 5 ara og algjor prinsessa og dekurdros... hun hefur fengid nokkur frekjukostin sidan vid komum. Thad fyndnasta er tho kaerasti konunnar (eda hann er vist stundum kaerastinn hennar og stundum ekki) sem heitir Joakim og er mesti Svii sem eg hef sed. Hann er alveg ljoshardur, orugglega svona 10 arum yngri en konan sjalf og gengur alltaf um half-nakinn. Eg var ekki alveg viss hvort eg aetti ad skammast min og reyna ad fordast ad horfa thar sem hann sprangadi um a naerfotunum eins og ekkert vaeri edilegra en akvad sidan ad reyna ad taka upp sma saenskan lettleika og kippa mer ekki upp vid thetta.

I gaer hittumst vid sidan nordjobbararnir i Gautaborg i Slottsskogen og grilludum og spiludum fotbolta og allskonar. Thad var mjog gaman ad hitta adeins fleiri thar sem eg hafdi bara hitt Johonnu sem leigir med meira og eina adra stelpu fram Finnlandi. Islendingarnir og Finnarnir voru tho yfirgnaefandi, 8 Islendingar, 6 Finnar, ein fra Danmorku og ein fra Noregi. Sum voru byrjud ad vinna nu thegar a hotelinu (eg byrja ekki fyrr en a manudaginn svo engar kukasogur strax fyrir orvar) en thegar eg spurdi hvort thau hefdu sed einhvern fraegan sagdist einn Finninn hafa sed eitt celeb. Og hver haldid thid ad thad hafi verid? Ju, alveg rett, thad var Carola! Eg sprakk ur hlatri thegar hun sagdi thetta og hugsadi med soknundi til systkina minna sem hefdu orugglega gefid margt fyrri ad thrifa skitinn eftir Carolu. Nu vona eg bara ad hun komi aftur sem fyrst.

Jaeja, thetta er ordid nogu langt og eg aetla ad reyna ad setja inn einhverjar myndir a myndasiduna adur en timinn er buinn. Reyni svo ad blogga aftur sem fyrst en nuna er thad bara ut i solina!

þriðjudagur, 5. júní 2007

Þetta er allt að koma!

Jæja, þá er ég búin að koma upp þessu fallega bleika bloggi þar sem ég ætla að reyna að blogga sem oftast á meðan ég er í Svíþjóð. Ef einhver heldur að ég ætli að blogga hérna mér til skemmtunar er það mikill misskilningur, þetta blogg þjónar aðeins þeim tilgangi að koma í veg fyrir það að mamma mín hringi í mig oft á dag til þess að spyrja hvort allt sé ekki í lagi. Í staðinn er ég búin að lofa henni að blogga eins oft og ég get sem ég ætla að reyna að standa við.

Annars byrjar ferðin vel strax (þótt ég fari ekki út fyrr en eftir tvo daga). Fékk símtal í gær frá Icelandair þar sem þeir sögðu mér að því miður hefði fluginu mínu verið aflýst (hérna stoppaði ég og hugsaði í sekúndubrot, ómægad ég kemst ekkert til Svíþjóðar og þarf að vinna aftur í IKEA í sumar) og þyrfti þess vegna að fljúga til Stokkhólms í staðinn og síðan frá Stokkhólmi til Gautaborgar. Frábærar fréttir fyrir flughrædda. Ég tók þessu nú samt öllu með ró en er orðin frekar stressuð núna þar sem ég hef ekki ennþá fengið miðann minn sem þau lofuðust til að senda mér.

Fyrir utan allt þetta er ég byrjuð að hugsa um hvað ég eigi nú að taka með mér, það erfiðasta er að velja hvaða skó ég vil taka með... jájá, ok, ég er kona, ég veit það, en þetta er mjög erfitt val. Hvað ef ég kaupi mér eitthvað úti sem passar einmitt við skó sem ég tók svo ekki með mér út? Það væri algjör disaster! Annars held ég að ég sé komin með allt það sem ég þarf til þess að lifa af í Svíþjóð:

Fake tan
Ljóst skol
Bleik föt
Best of Abba diskur
Basshunter plakat
Vindvél (a la Carola)
Munntóbak

Ég meina, maður verður nú allaveganna að reyna að falla inn í hópinn!